Föstudagur 1. október 2021 kl. 17:06
Fimmtán ára stöðvaður fyrir akstur bifreiðar
Fimmtán ára piltur var staðinn að því að aka bifreið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær. Hann viðurkenndi það og kvaðst sjá mikið eftir því. Rætt var við forráðamenn hans.