Fimmfalt fleiri íbúðir á uppboði
Útlit er fyrir að um 230 fasteignir verði seldar á nauðungaruppboði á Suðurnesjunum á fyrri helmingi þessa árs. Í fyrra voru 94 eignir seldar allt árið og 28 árið 2007. Aukningin er fimmföld milli ára.
Þar fyrir utan eru um 200 fasteignir sem óskað hefur verið eftir uppboði á en uppboði hefur verið frestað. Morgunblaðið segir frá þessu í morgun.
---
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.