Fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tvær nauðganir
- Braut gegn tveimur 15 ára stúlkum
18 ára drengur hlaut á dögunum fimm og hálfs árs fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot og líkamsárásir gegn tveimur fimmtán ára stúlkum síðasta sumar. Annarri stúlkunni nauðgaði hann í Reykjanesbæ í júlí. Eftir nauðgunina fóru foreldrar hans með hann á geðdeild. Hann var ekki lagður þar inn né var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Sex dögum síðar nauðgaði hann fimmtán ára stúlku í Reykjavík. Fyrst var greint dóminum í Fréttatímanum. Ákærði gekkst undir geðrannsókn og var metinn sakhæfur.
Stúlkan sem drengurinn nauðgaði í Reykjanesbæ lýsti því hvernig hann hafi tekið hana kverkataki, stigið ofan á háls, sparkað í hana og slegið, hótað að drepa hana og nauðgað tvisvar sinnum. Stúlkan sem hann nauðgaði í Reykjavík var flutt á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis, illa leikin eftir árásina. Í Fréttatímanum er greint frá því að mikil reiði hafi verið innan lögreglunnar yfir því að piltinum hafi verið sleppt nokkrum klukkutímum eftir að tilkynnt var um fyrri nauðgunina.