Mánudagur 3. mars 2014 kl. 10:27
Fimm of hratt og einn virti ekki stöðvunarskyldu
Fimm ökumenn í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum voru sektaðir um helgina fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 139 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.
Þá var einn ökumaður til viðbótar sektaður fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu.