Bygg
Bygg

Fréttir

Fimm menn í gæsluvarðhaldi
Mánudagur 19. október 2009 kl. 08:44

Fimm menn í gæsluvarðhaldi


Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist í gær gæsluvarðhalds yfir tveimur Litháum sem taldir eru tengjast ætluðu mansali. Héraðsdómur Reykjaness féllst á kröfuna og er mönnunum gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 21. Október. Alls sitja því 5 menn í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

 Einn maður var handtekinn í gær vegna rannsóknar málsins og verður hann yfirheyrður á morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum hafa nú borist upplýsingar frá litháískum lögregluyfirvöldum fyrir milligöngu Alþjóðadeildar Ríkislögreglustjórans sem staðfesta að þær upplýsingar sem litháíska konan gaf um nafn sitt og fæðingardag séu réttar.

Fjöldi rannsóknarlögreglumanna hefur unnið stöðugt að rannsókn málsins undanfarna daga. Að sögn lögreglu er rannsóknin á viðkvæmu stigi og ekki unnt að tjá sig frekar um hana að svo komnu máli.

Bílakjarninn
Bílakjarninn