Fimm með fíkniefni
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af fimm einstaklingum, sem voru með fíkniefni í fórum sínum. Í húsleit hjá einum þeirra, að fengnum dómsúrskurði, fannst talsvert af kannabis sem hann geymdi í plastfötu. Þrír til viðbótar voru einnig með kannabisefni og sá fimmti, sem lögregla hafði afskipti af, framvísaði amfetamíni.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.