Fimm á hraðferð og níu trassa skoðun
Fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í gær. Sá sem hraðast fór var tekinn á 126 km hraða á klst. á Reykjanesbrautinni þar sem löglegur hámarkshraði er 90, en alls voru 3 af 5 á yfir 120 km hraða sem ætti að koma vel við budduna.
Auk þess voru níu bifreiðar boðaðar í skoðun af lögreglunni í nótt, en eigendur þeirra höfðu vanrækt að færa þær til aðalskoðunar/endurskoðunar fyrir árið 2007.
Auk þess voru níu bifreiðar boðaðar í skoðun af lögreglunni í nótt, en eigendur þeirra höfðu vanrækt að færa þær til aðalskoðunar/endurskoðunar fyrir árið 2007.