Bygg
Bygg

Fréttir

Fimleikahúsið í Krossmóa afhent í dag
Föstudagur 5. mars 2010 kl. 14:58

Fimleikahúsið í Krossmóa afhent í dag

Reykjanesbær afhendir Fimleikadeild Keflavíkur formlega nýtt æfingahúsnæði  fyrir starfsemi sína í Íþróttaakademíunni í Krossmóa, Reykjanesbæ,í dag.


Gerðar hafa verið breytingar á húsnæði akademíunnar sem áður hýsti heilsuakademíu Keilis, miðstöð vísinda og fræða en hún hefur nú verið flutt að Ásbrú þar sem önnur starfsemi fer fram. Til stóð að byggja nýtt fimleikahús fyrir efnahagshrunið en í kjölfar þess var tekin sú ákvörðun hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar að nýta húsnæði akademíunnar en til þess að húsnæðið gæti uppfyllt kröfur fimleikadeildarinnar var gerð gryfja í íþróttasal og tækjabúnaður endurnýjaður að hluta. Að auki hefur deildin til umráða upphitunar- og leikrými og speglasal. Framkvæmdir við húsnæðið og flutningarnir hafa gengið vel og hafa margir lagt hönd á plóg m.a. foreldrar iðkenda fimleikadeildarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Miklir möguleikar skapast með nýju húsnæði
Í dag eru iðkendur í Fimleikadeild Keflavíkur samtals 350 á aldrinum 3 - 40 ára. Vegna húsnæðisþrenginga var biðlisti orðinn langur hjá deildinni en við flutninginn í nýtt húsnæði var hægt að eyða honum. Nú er þó komin aftur 20 manna biðlisti og helgast hann af þjálfaraskorti. Alls starfa 18 þjálfarar og 7 aðstoðarþjálfarar hjá fimleikadeildinni sem einnig býður upp á fullorðinsfimleika fyrir 18 ára og eldri og nýjasta æðið sem er Parkour sem kalla má götufimleika. þar er mikil aðsókn, sérstaklega hjá ungum drengjum sem hafa ekki fundið sig í öðrum íþróttagreinum. Mikil aðsókn er í krakkahópa og  nú er mögulegt í fyrsta sinn að taka á móti börnum sem verða 3 ára á árinu.


Fimleikadeildin hefur ráðið Maríu Óladóttur framkvæmdastjóra sem er nýbreytni en hún kemur í stað tveggja yfirþjálfara. Framkvæmdastjórinn sér um öll samskipti við Fimleikasamband Íslands, skráningar á mót, skráningar í deildina og fl. Í stjórn deildarinnar starfa 9 manns undir stjórn Helgu Hildar Snorradóttur formanns.

María Óladóttir segir að það skapast miklir möguleikar með nýju húsnæði fyrir utan það augljósa sem er t.d. aukinn fjöldi og vonandi aukinn árangur. „Einnig er stórkostlegt að þurfa ekki að bera tækin fram og til baka. Við getum nú boðið upp á æfingabúðir og nú þegar hafa tvö erlend lið sýnt áhuga á að koma og æfa hjá okkur, einnig hafa íslensk lið sýnt því mikinn áhuga á að koma. Við erum að „smíða“ pakka sem við ætlum að bjóða upp á í tenglsum við þetta. Einnig geta íslensk félög komið að æfa hérna við þessar góðu aðstæður og nú þegar hafa einhver félög sýnt því áhuga.
Við eigum einnig auðveldara með að halda mót þar sem við erum með „lögleg“ áhöld og algjörlega samkeppnishæf,“ segir María Óladóttir.