Sunnudagur 14. október 2018 kl. 13:23
Fíkniefni við flugstöðina
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning um fund fíkniefna á bifreiðastæðinu framan við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang reyndist vera um að ræða poka með kannabisefni og litla glerpípu.
Efnið og pípan voru haldlögð og þeim fargað.