Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Framúrskarandi fyrirtæki 2025

Fréttir

Fíkniefni og sterar fundust við húsleit
Föstudagur 12. ágúst 2016 kl. 14:00

Fíkniefni og sterar fundust við húsleit

Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á fíkniefni og stera fyrr í vikunni í kjölfar húsleitar á heimili tveggja einstaklinga, að fenginni heimild. Við leitina fundust kannabisefni og nokkurt magn stera. Báðir aðilar voru handteknir og í fórum þeirra voru umtalsverðar fjárhæðir. Fólkið viðurkenndi sölu fíkniefna við skýrslutöku hjá lögreglu.

Þá reyndist farþegi í bifreið sem lögregla stöðvaði við hefðbundið eftirlit vera með kannabispoka í fórum sínum sem hann framvísaði.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Dubliner
Dubliner