Fíkniefni í bifreið
Aðfararnótt sunnudags vöknuðu grunsemdir um að fíkniefni væru í bifreið sem lögreglan í Keflavík stöðvaði við venjubundið umferðareftirlit. Við leit í bifreiðinni fannst áhald til fíkniefnaneyslu og tveir pokar með einu grammi af amfetamíni. Ökumaður bifreiðarinnar sem var einn í bifreiðinni viðurkenndi að eiga efnið.