HSS
HSS

Fréttir

Fíkniefni fundust í rassíu lögreglu
Þriðjudagur 18. mars 2003 kl. 17:53

Fíkniefni fundust í rassíu lögreglu

Gerð var húsleit í 2 húsum á Suðurnesjum í gær vegna gruns um fíkniefnamisferli. Aðgerðin var á vegum starfshóps Tollgæslunnar, lögreglunnar í Keflavík og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Fimm menn voru handteknir og yfirheyrðir en við leitina fundust 7grömm af hassi, 6 grömm af amfetamíni og 3 grömm af maríjúna.Aðgerðin var liður í sérstöku átaki gegn ólöglegum fíkniefnum og götusölu efnanna á Suðurnesjum, segir á RÚV.
Bílakjarninn
Bílakjarninn