Fréttir

Fíkniefni fundust í bílskúr
Föstudagur 23. janúar 2015 kl. 14:39

Fíkniefni fundust í bílskúr

Lögreglan á Suðurnesjum fann kannabisefni og amfetamín í húsleit sem gerð var í umdæminu í fyrradag. Húsráðandi hafði heimilað leit og í bílskúr fannst meint kannabisefni í áldós og meint amfetamín í keramikglasi. Þar fannst einnig mikill búnaður til kannabisræktunar. Húsráðandi var handtekinn og færður á lögreglustöð til skýrslutöku.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024