Fíkniefni fundust eftir útafakstur
Lögreglan í Keflavík fann talsvert magn af kannabisefnum á ökumanni og farþega bifreiðar sem hafði hafnað utan vegar við Vogastapa á Reykjanesbraut á tíunda tímanum í gærmorgun.
Er afskipti voru höfðu af ökumanninum og farþeganum vöknuðu upp grunsemdir um vörslu fíkniefna og við leit á ökumanninum fundust um 20 gr. af maríjúana. Einnig fannst lítilræði af maríjúana í bifreiðinni. Fólkið var handtekið en síðan sleppt lausu eftir skýrslutöku.