Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 21. janúar 2004 kl. 09:40

Fíkniefni fundust á ungum mönnum

Í gærkvöldi hafði lögreglan í Keflavík afskipti af þremur mönnum í Keflavík, tveimur 17 ára og einum 20 ára vegna gruns um neyslu og vörslu fíkniefna. Við leit á einum þeirra fundust 19 grömm af marijúana Mennirnir voru teknir til yfirheyrslu og við húsleit hjá þeim fundust áhöld til fíkniefnaneyslu. Eftir yfirheyrslur voru mennirnir látnir lausir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn