Fíkniefni finnast í sjoppu
Fimm grömm af hassi fundust í sjoppu í Reykjanesbæ í vikunni. Málið er nú í rannsókn. Í síðustu viku voru fjórir aðilar handteknir í Reykjanesbæ og á einum þeirra fundust 2 grömm af hassi. Fjórmenningarnir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina í Keflavík til yfirheyrslu. Að henni lokinni voru þeir frjálsir ferða sinna. Tvær konur á þrítugsaldri voru handteknar á Reykjanesbraut í síðustu viku. Í bifreið þeirra fundust 3 grömm af marijúana. Konurnar eru þekktir fíkniefnaneytendur og hafa oft áður komið við sögu lögreglunnar. Þær voru yfirheyrðar en eru nú frjálsar ferða sinna.Lögreglan í Reykjavík handtók konu frá Reykjanesbæ í vikunni, en hún er talin stunda víðtæka fíkniefnasölu. Á henni fundust 60 grömm af hassi, 9 grömm af amfetamíni, 80 steratöflur og eitthvert magn af sterum í fljótandi formi. Hún var yfirheyrð og bíður nú dóms.