Fíkniefnasali aftur á ferðinni
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöld ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn var færður á lögreglustöð, þar sem sýnatökur staðfestu neyslu hans á amfetamíni. Og það sem meira var, hann var með átta grömm af amfetamíni á sér. Við leit á heimili hans fannst lítilræði af amfetamíni til viðbótar.
Þetta er sami maður og lögreglan á Suðurnesjum handtók nýverið vegna aksturs undir áhrifum amfetamíns. Hann játaði þá, auk fíkniefnaakstursins, sölu fíkniefna. Við húsleit heima hjá honum í það skiptið fundu lögreglumenn 100 grömm af amfetamíni, sem hann hafði að stærstum hluta komið fyrir í frysti. Að auki fannst lítilræði af kannabisefnum.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.