Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 2. september 1999 kl. 23:13

FÍKNIEFNASALI HANDTEKINN Í REYKJANESBÆ

Aðfararnótt laugardagsins 28. ágúst kl. 00:30 stöðvaði lögreglan í Keflavík bifreið í Njarðvíkunum. Vaknaði grunur á að um meðhöndlun og sölu á fíkniefnum væri að ræða og voru ökumaður og farþegi handteknir og færðir á lögreglustöð þar sem 1. gram af meintu amfetamíni fannst á öðrum aðilanum. Að fenginni heimild var leitað í bifreiðinni og fundu laganna verðir þar talsvert magn fíkniefna, meintu amfetamíni. Í kjölfar þessa var óskað leitarheimildar á heimili meints sölumanns í Njarðvíkum og fundust við húsleitina fíkniefni, auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu. Einn aðili var handtekinn í kjölfar húsleitarinnar. Á sunnudeginum úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness tvo aðila í gæsluvarðhald, annan í 10 daga en hinn í 7 daga, í þágu rannsóknar málsins.
Bílakjarninn
Bílakjarninn