Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

FFGÍR með átak í hjálmanotkun
Miðvikudagur 18. maí 2005 kl. 13:41

FFGÍR með átak í hjálmanotkun

FFGÍR, Foreldrafélög og Foreldraráð Grunnskóla í Reykjanesbæ, stendur nú fyrir átaki í Reykjanesbæ fyrir notkun hjálma og annara öryggistækja, þar sem allt of algengt er að börn séu á reiðhjólum, línuskautum o.s.frv. án hjálma.

Á heimasíðu sinni bendir FFGÍR á nokkur atriði um hvernig hægt er að auðvelda foreldrum að fá börn sín til að nota hjólreiðahjálm:

-Mikilvægt er að byrja snemma að venja barnið á að nota hjálm t.d. um leið og barnið fer að nota þríhjól.

-Leyfið barninu að koma með þegar hjálmurinn er keyptur. Þannig getur það valið hjálm sem það langar í.

-Mikilvægt er að máta hjólreiðahjálminn í versluninni áður en að hann er keyptur og að kaupa hjálm sem auðvelt er að stilla rétt og situr þægilega á höfði barnsins. Hjálmur sem ekki er rétt stilltur og passar illa á barnið er ekki jafn öruggur.

-Útskýrið fyrir barninu hvers vegna svo mikilvægt er að nota hjálm við hjólreiðar.

-Hrósið barninu fyrir að nota hjálminn rétt.

-Verið ÁKVEÐIN, ekki gefa barninu það eftir að nota ekki hjálminn.

-Verið góð fyrirmynd og notið alltaf hjálm þegar þið hjólið eða eruð á línuskautum.

-Einnig er mikilvægt að brýna fyrir börnum að nota olnboga-, úlnliðs- og hnéhlífar með hjálminum þegar þau eru á línuskautum, skautum, hjólabrettum og hlaupahjólum.

Að lokum er bent á nauðsyn þess að allir foreldrar ræði við börn sín um það öryggi að nota hjálm og önnur öryggistæki, fylgi eftir umferðarlögum um hjálmnotkun og gangi fram með góðu fordæmi.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024