Ferskt loft frá Suðurnesjum á Snæfellsnesið
Brunavarnir Suðurnesja tóku þátt í slökkvistarfi að Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi í nótt. Aðstoð Brunavarna Suðurnesja var að leggja til bíl með súrefnisbanka fyrir reykkafara.
Stórburni varð í nótt þegar eldur kom upp í fiskþurrkun á Snæfellsnesi. Slökkvilið af vesturlandi tóku þátt í slökkvistarfinu og nutu svo aðstoðar Brunavarna Suðurnesja sem mætti með loftbankann sem er í sérútbúinni bifreið BS.
Einn slökkviliðsmaður fór með bílinn vestur á Snæfellsnes og er ennþá á brunastað en unnið er að því að slökkva í glæðum og því enn þörf fyrir súrefni á staðnum.