Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 4. nóvember 2021 kl. 14:45
Ferskir vindar frestast um ár
Alþjóðlegu listahátíðinni Ferskir vindar, sem átti að vera í desember og janúar næstkomandi í Suðurnesjabæ, hefur verið frestað um eitt ár vegna heimsfaraldurs Kórónuveiru.
Þetta kemur fram í minnisblaði sem sviðsstjóri stjórnsýslusviðs kynnti bæjarráði Suðurnesjabæjar á síðasta fundi ráðsins.