Ferðaþjónusta orðin stærsta starfsgreinin í Reykjanesbæ
Í nýrri könnun MMR, sem unnin er fyrir Atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar kemur fram að ferðaþjónusta og samgöngur eru í mikilli sókn og eru nú orðin stærsta starfsgrein íbúanna. Könnunin er unnin í samræmi við aðferðarfræði MMR.
Alls eru 19,6% starfandi íbúa Reykjanesbæjar við ferðaþjónustu og samgöngur.
„Þetta er talsvert hröð þróun frá því vor en þá voru tæplega 17% starfandi íbúa við þessa grein“. Segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.
„Það á þó ekki að koma á óvart því fjölgun í ferðaþjónustu hefur verið mikil á þessu sumri og vonandi að störfin haldist lengur út árið en verið hefur undanfarin ár.
Næst stærsta atvinnugreinin tengist fræðslu, þjálfun og menningarstarfsemi með um 14,9% starfandi íbúa.