Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðjudagur 9. júlí 2002 kl. 12:13

Ferðastyrkur til nemenda verði kannaður

Kjartan Már Kjartansson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, hefur lagt fram fyrirspurn og farið fram á að að bæjarstjóri taki saman upplýsingar um hvort og þá með hvaða hætti önnur sveitarfélög á Reykjanesi og suðvestur horni landsins standa að því að veita nemendum, sem búa í sveitarfélögunum en sækja skóla í Reykjavík, ferðastyrki.Í greinargerð með fyrirspurninni segir: Fram til þessa hefur ferðastyrkur Reykjanesbæjar til nemenda, sem stunda nám á framhalds- eða háskólastigi, eingöngu falist í niðurgreiðslum á farmiðum með SBK. Undirrituðum er kunnugt um fjölmarga nemendur sem hafa frekar kosið að keyra saman í bíl m.a. vegna þess að áætlun SBK hefur ekki fallið að stundaskrám, stoppistöðvar í Reykjavík hafa verið fjarri skólunum o.s.frv.


Reykjanesbær 2. júlí 2002
Kjartan Már Kjartansson
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024