Fréttir

Ferðamenn slösuðust í flugstöðinni
Þriðjudagur 7. nóvember 2017 kl. 06:00

Ferðamenn slösuðust í flugstöðinni

Tveir erlendir ferðamenn slösuðust í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um helgina. Annað atvikið varð með þeim hætti að kona datt á andlitið þegar hún var að ganga í gegnum Fríhöfnina, töluvert blæddi úr andliti hennar og var talið að hún hefði nefbrotnað.  Hún var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Í hinu tilvikinu féll kona í rúllustiga, hún var með nokkur blæðandi sár á höfði eftir óhappið og kvartaði undan verkjum og var hún einnig flutt á HSS.
Betur fór en á horfðist þegar vegfarandi hljóp á hlið bifreiðar á ferð í Reykjanesbæ, viðkomandi hruflaðist á hendi en dæld kom í bílinn við atvikið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024