Ferðamenn slösuðust í flugstöðinni
Tveir erlendir ferðamenn slösuðust í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um helgina. Annað atvikið varð með þeim hætti að kona datt á andlitið þegar hún var að ganga í gegnum Fríhöfnina, töluvert blæddi úr andliti hennar og var talið að hún hefði nefbrotnað. Hún var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.
	Í hinu tilvikinu féll kona í rúllustiga, hún var með nokkur blæðandi sár á höfði eftir óhappið og kvartaði undan verkjum og var hún einnig flutt á HSS.
	Betur fór en á horfðist þegar vegfarandi hljóp á hlið bifreiðar á ferð í Reykjanesbæ, viðkomandi hruflaðist á hendi en dæld kom í bílinn við atvikið.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				