Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ferðamenn í hraðakstri
Þriðjudagur 2. október 2018 kl. 10:21

Ferðamenn í hraðakstri

Átján ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 153 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Næstmesti hraði sem mældur var reyndist vera 147 km þar sem hámarkshraði er einnig 90 km. Í báðum tilvikum var um að ræða erlenda ferðamenn.
 
Þá hafði lögregla afskipti af bifreið þar sem farþegi hélt á sex mánaða barni í fanginu og var það þar af leiðandi ekki í  tilskyldum öryggisbúnaði.
 
Fáeinir ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur og skráningarnúmer voru fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024