Ferðamaður tekinn með hass
	Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af erlendum ferðamanni á Keflavíkurflugvelli. Tollverðir höfðu fundið hass í fórum mannsins og óskuðu aðstoðar lögreglu. Hassið reyndist vera tæp fimm grömm.  Maðurinn greiddi 50 þúsunda króna sekt á staðnum og hélt síðan leiðar sinnar.
	
	Áður hafði lögregla haft afskipti af íslenskum karlmanni sem var staddur skammt frá lögreglustöðinni á Hringbraut í Keflavík. Hann framvísaði fimm pokum af kannabis og reyndist einnig vera með aðra tegund fíkniefna  í buxnavasa sínum.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				