Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ferðamaður ók út í urð og grjót
Þriðjudagur 28. september 2021 kl. 09:19

Ferðamaður ók út í urð og grjót

Erlendur ferðamaður ók út af Reykjanesbraut um helgina. Bifreiðin fór yfir urð og grjót og skemmdist mikið. Hún var fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið. Ökumaðurinn kvaðst hafa verið þreyttur og taldi að hann hefði sofnað undir stýri.

Þá voru höfð afskipti af öðrum ökumanni sem ók Reykjanesbraut á 123 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Þegar betur var að gáð reyndist hann vera með ungt barn í aftursæti bifreiðarinnar sem ekki var í tilskildum öryggisbúnaði. Hann var látinn bíða þar til leigubifreið kom með barnabílstjól.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur og fáeinir til viðbótar fyrir vímuefnaakstur. Tveir þeirra síðarnefndu óku sviptir ökuréttindum.