Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Ferðamaður hreiðraði um sig í torfkofa
Mánudagur 7. maí 2018 kl. 11:05

Ferðamaður hreiðraði um sig í torfkofa

Lögreglan á Suðurnesjum hafði nýverið afskipti af erlendum ferðamanni sem var búinn að hreiðra um sig í gömlum torfkofa við rústir gömlu byggðarinnar í Hópsnesi. Þar hafði hann komið fyrir pjönkum sínum sem samanstóðu af svefnpoka og bakpoka.

Maðurinn kvaðst vera búinn að dvelja hér á landi í um þrjá mánuði og sagðist ekki hafa efni á öðrum gististað. Honum var vinsamlegast bent á að hann gæti ekki hafst við í kofanum og þyrfti að gera eitthvað í sínum málum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Lögregla mun fylgjast með því að maðurinn fari að fyrirmælum og yfirgefi torfkofann.