Ferðamaður fór út úr leigubíl á ferð
	Neyðarlínunni barst tilkynning um það að maður hefði fallið út úr bifreið á ferð á Austurbraut á Ásbrú í Reykjanesbæ síðastliðinn mánudag. Við fallið hlaut hann mikla höfuðáverka. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
	
	Þarna hafði kínverskur ríkisborgari, tæplega fertugur karlmaður, farið úr leigubifreið sem keyrði á um 40 km hraða á klukkustund. Hann var fluttur á Landspítala í Fossvogi þar sem hann gekkst undir aðgerð.
	
	Maðurinn liggur nú þungt haldinn og meðvitundarlaus á Landspítalanum en samband hefur náðst við foreldra mannsins í Kína.
	
	Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en nánari tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				