Mánudagur 26. júní 2006 kl. 17:32
Ferðahandbókin Reykjanes 2006 komin út
Ferðahandbókin Reykjanes 2006 fer í dreifingu um allt land í þessari viku. Blaðið er 64 síðna handbók um ferðaþjónustu á Suðurnesjum. Því verður dreift á upplýsingamiðstöðvar ferðamála og á vinsælum ferðamannastöðum við hringveginn um Ísland.
Það eru Víkurfréttir sem gefa blaðið út.