Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ferðafélag Íslands og VÍS fara af stað með heilsueflandi gönguferðir
Frá undirritun samnings. F.v.: Sigrún A. Þorsteinsdóttir forvarnarfulltrúi VÍS, Páll Guðmundsson framkvæmdasstjóri FÍ, Guðný Helga Herbertsdóttir markaðsstjóri VÍS, Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ og Ólöf Sívertssen verkefnisstjóri hjá FÍ.
Þriðjudagur 11. júlí 2017 kl. 10:49

Ferðafélag Íslands og VÍS fara af stað með heilsueflandi gönguferðir

-Göngurnar eru einn af hápunktum 90 ára afmælis FÍ

Ferðafélag Íslands og VÍS hafa skrifað undir samstarfssamning varðandi ókeypis Lýðheilsugöngur FÍ sem verða á öllu landinu nú í september. Gengið verður meðal annars um allt Reykjanes, alla miðvikudaga í september. Göngurnar eru einn af hápunktunum í glæsilegri afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Tilgangurinn verkefnisins er að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Eins og áður segir er ráðgert að göngurnar fari fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18.  Göngurnar verða í nærumhverfi hvers bæjarfélags, þær verða fjölskylduvænar og taka um það bil 60 til 90 mínútur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

VÍS kemur að verkefninu en fyrirtækið er þekkt fyrir áherslur sínar á forvarnir, heilsueflingu og öryggi. Með þessu samstarfi vilja allir hlutaðeigandi leggja sitt af mörkum til að stuðla að bættri lýðheilsu landans þar sem horft er til líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar vellíðunar auk öryggis- og umhverfisþátta. Faglegir samstarfsaðilar verða Velferðarráðuneytið og Landlæknisembættið.

Með þessu átaki vilja Ferðafélag Íslands og VÍS hvetja íbúa sveitarfélaga landsins til þess að taka þátt í þessu skemmtilega og heilsueflandi verkefni, hvort sem um er að ræða skipulagningu á göngum eða almenna þátttöku á göngudögunum.