HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 15. maí 2001 kl. 16:00

Fengu tvo hákarla á línuna

Þessi litla 5 tonna trilla, Víkingur GK, lenti í afar óvenjulegri veiði þegar þeir voru að gæta að línu 40 mílur út af Grindavík á laugardag, eða suð-suð vestur í rassgati nánar tiltekið, eins og þeir orða það.Tvær hákerlingar höfðu flækt sig svo rækilega í línuna að þeir sáu sér ekki vænna en að drösla þeim í land og hnýttu þær á sitthvora síðuna og sigldu með þær í land. Stærri hákerlingin er 4,5 metrar að lengd og um 700 kg.

Á myndunum eru karlarnir sem húkkuðu þessar vænu kerlingar og tóku með sér heim, litla stúlkan sem er með á myndinni og var að taka á móti pabba sínum heitir Alexandra. Talið frá vinstri er Grétar Guðfinnsson og Haukur Guðberg Einarsson. Í landi biðu þeirra vísindamenn sem tóku sýni og söfnuðu fróðleik um þessar tignu skepnur, sögðu þeir að þetta væri hinn eini sanni þorramatur landans, eða Grænlandshákarl eins og þeir orðuðu það.
Bílakjarninn
Bílakjarninn