Fengu risaþorsk á Austfjarðamiðum
Áhöfnin á Ágústi GK 95 fékk heldur betur vænan þorsk á línuna á Austfjarðamiðum þann 3. október.
Þorskurinn á myndinni var 165 sm. langur en þyngdin á honum er eitthvað ólós en þorskurinn var talinn vera 45-50 kílóa þungur
„Aflinn þennan dag var mjög góður og kaldaskítur á miðunum,“ segir í fréttaskeyti frá áhöfninni til Víkurfrétta. Ágúst GK landar á Djúpavogi um þessar mundir.
Á myndinni er Eysteinn Örn Garðarsson, 1. vélstjóri með þorskinn væna.