Fengu iPad fyrir að skemmta sér án áfengis
Nemendafélag Fjölbrautarskóla Suðurnesja í samstarfi við foreldrafélag skólans og Reykjanesbæ, veittu viðurkenningu tveimur heppnum einstaklingum sem höfðu mætt à dansleiki à vegum nemendafélagsins s.l. vetur àn þess að neyta àfengis. Ísak Ernir Kristinsson formaður NFS afhenti iPad spjaldtölvur fyrir þau Andreu Lind Hannah og Ivan Jugovic en þau höfðu verið dregin út úr hópi þeirra sem tóku þàtt.
Kristjàn Ásmundsson skólameistari FS sagði í màli sínu við þetta tækifæri að þau væru góð fordæmi fyrir aðra nemendur og vonaði að hægt verði að byggja ofan à þetta verkefni og efla. Ísak Ernir sem nú lætur af embætti formanns NFS skoraði à nýkjörinn formann Arnór Svansson að halda àfram à þessari braut. Það voru foreldrafélag skólans og Reykjanesbær sem gàfu verðlaunin.