Fréttir

Fella starfsleyfi Thorsil úr gildi
Fimmtudagur 27. október 2016 kl. 15:56

Fella starfsleyfi Thorsil úr gildi

- Ekki staðið að auglýsingu á réttan hátt

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp í dag þann úrskurð að felld er úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunar frá 11. september 2015 um að veita Thorsil ehf. starfsleyfi fyrir rekstri kísilverksmiðju á iðnaðarsvæðinu í Helguvík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun. 

Frestur til að koma að athugasemdum var rangt út reiknaður að mati nefndarinnar miðað við birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaðinu og telst fjórum dögum of stuttur miðað við átta vikna athugasemdafrest. Frestur til að koma að athugasemdum var reiknaður út frá birtingu auglýsingar á heimasíðu stofnunarinnar. Í reglugerð er kveðið á um að auglýsa skuli tillögu að starfsleyfi með tryggum hætti svo sem í dagblaði eða staðarblaði. Í tilkynningunni kemur fram að Umhverfisstofnun þyki þetta miður og muni tafarlaust bæta úr verklagi. Úrskurðurinn gefur ekki til kynna að starfsleyfið sé haldið efnislegum ágöllum. Umhverfisstofnun undirbýr nú nýja auglýsingu starfsleyfisins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024