Fréttir

Féll úr stiga og beinbrotnaði
Föstudagur 9. október 2015 kl. 10:31

Féll úr stiga og beinbrotnaði

Maður sem féll úr álstiga þar sem hann var við vinnu sína í gær handleggsbrotnaði og fór úr olnbogalið.

Maðurinn var að vinna við brunavarnarkerfi í leikskóla í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þegar hann féll úr stiganum niður á gólf byggingarinnar og kom niður á olnbogann.  

Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala þar sem gert var að meiðslum hans. Lögregla upplýsti Vinnueftirlitið um slysið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024