Fimmtudagur 29. apríl 2004 kl. 21:10
Féll úr stiga í Kölku
Vinnuslys varð í sorpeyðingarstöðinni Kölku í Helguvík þegar starfsmaður í stöðinni féll úr stiga. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en mun ekki hafa slasast alvarlega.