Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Féll úr sex metra hæð í Leifsstöð
Föstudagur 16. júní 2017 kl. 11:01

Féll úr sex metra hæð í Leifsstöð

- Fluttur á bráðamóttöku Landspítalans

Vinnuslys varð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni þegar karlmaður féll úr sex metra hæð og lenti á steyptu undirlagi. Maðurinn var að vinna á vinnupalli í nýbyggingu í flugstöðinni þegar óhappið átti sér stað. Hann steig á gluggapóst sem lét undan þunga hans og féll hann fram fyrir sig. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á bráðamóttökuna á Landspítala. Ekki er vitað um líðan hans.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024