Féll fyrir borð af loðnuveiðiskipi út af Sandvík
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út á níunda tímanum í gærkvöldi þegar skipverji á íslensku loðnuveiðiskipi féll fyrir borð út af Sandvík á Reykjanesi.
Áhöfn færeysks loðnuveiðiskips, sem var í grenndinni, brást skjótt við og tókst að kasta björgunarhring til skipverjans.
Skömmu síðar komu skipsfélagar mannsins honum til bjargar á léttbát. Áhöfn þyrlunnar sótti manninn og flutti á Landspítalann í Fossvogi. Líðan hans er eftir atvikum góð, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.