Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Féll fjóra metra ofan af húsþaki
Mikið annríki við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sl. föstudagskvöld. Þarna eru þrír sjúkrabílar en tveir þeirra eru vegna slyssins þegar karlmaður féll af húsþaki. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 28. ágúst 2018 kl. 17:47

Féll fjóra metra ofan af húsþaki

Flytja þurfti karlmann með sjúkrabifreið á Landspítala um helgina eftir að hann hafði fallið af þaki húss í Keflavík. Hann hafði verið að skipta um bárujárn á þakinu þegar hann tók að renna niður það og féll um fjóra metra til jarðar.  Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti atvikið til Vinnueftirlitsins.
 
Annað vinnuslys varð þegar starfsmaður datt fyrir utan flugeldhús í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Viðkomandi var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
 
Þá varð slys þegar kona féll í hrauninu við Keili.  Hún var flutt með sjúkrabifreið undir læknis hendur.
Public deli
Public deli