Miðvikudagur 27. september 2006 kl. 08:44
Féll af svölum og fótbrotnaði
Um miðjan dag í gær var óskað eftir sjúkrabifreið og lögreglu að Framnesvegi í Keflavík en þar hafði maður dottið af svölum á annari hæð.
Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var hann talinn vera fótbrotinn. Ekki er vitað um ástæður þess að maðurinn féll fram af svölunum.