Féll af reiðhjóli og rotaðist
- annar ók á vegrið og slasaðist
Karlmaður rotaðist þegar hann féll af reiðhjóli sínu á Krísuvíkurvegi um helgina. Hann hjólaði á grjót með þeim afleiðingum að hann skall í malbikið. Hann hlaut m.a. meiðsl í andliti og var fluttur á Landspítala til aðhlynningar.
Þá meiddist ökumaður þegar bifreið hans fór utan í vegrið á Reykjanesbraut og endaði utan vegar. Hann fann til verkja og var fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Myndin með fréttinni er frá vettvangi þess slyss. VF-mynd: Óskar Birgisson