Féll af mótorkrosshjóli og slasaðist
Karlmaður um tvítugt féll af mótorkrosshjóli sínu á mótorkrossbraut í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærkvöld og missti meðvitund. Hann fann til eymsla eftir fallið og var komið undir læknis hendur. Ekki er ljóst hve mikil meiðsl hans voru.
Þá féll maður á jörðina í gærmorgun þegar stigi sem hann stóð í, er hann vann við endurnýjun á þakkanti húss, rann undan honum. Maðurinn rak höfuðið í vegg hússins í fallinu. Hann var fluttur til aðhlynningar á Landspítala.
Enn fremur var tilkynnt um innbrot í verkfæragám í umdæminu og þjófnað á verkfærum úr honum. Ekki er ljóst hve miklu var stolið.