Féll af hjóli og slasaðist
Karlmaður á þrítugsaldri féll af bifhjóli sínu við mótorkrossbrautina í Sandgerði og slasaðist á fæti.
Karlmaður á þrítugsaldri féll um helgina af bifhjóli sínu við mótorkrossbrautina í Sandgerði og slasaðist á fæti. Slysið vildi til með þeim hætti að maðurinn hjólaði ofan í poll og missti við það stjórn á hjólinu. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að meiðslum hans.