Mánudagur 11. apríl 2016 kl. 12:59
Féll af hestbaki og slasaðist
Hestamaður slasaðist þegar hann féll af hesti sínum við Mánagrund í Keflavík sl. föstudag. Lögregla og sjúkrabifreið fóru á staðinn og var knapinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ekki er vitað um ástæður óhappsins en maðurinn reyndist hafa hlotið meiðsl á ökkla.