Mánudagur 27. mars 2006 kl. 09:15
Féll af hestbaki og rotaðist
Kona féll af hestbaki á athafnasvæði hestamannafélagsins Mána í Mánagrund í dag og rotaðist við fallið. Hún var flutt með sjúkrabifreið til sjúkrahússins í Keflavík en fékk að fara heim að læknisskoðun lokinni.