Felgu stolið: Lýst eftir vitnum
Felgu var stolið undan bifreið af Subarugerð klukkan 23:30 í gærkvöldi þar sem hún stóð utan við bílasölu við Bolafót í Njarðvík.
Vitni sagði að þjófarnir hafi verið á vínrauðri Subarubifreið með skyggðum afturrúðum. Þeir sem gætu veitt upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við Lögregluna í Keflavík. S: 420-2450