Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Félagsmálaráðuneyti gerði athugasemd við kosningu í bæjarstjórn Voga
Fimmtudagur 28. september 2006 kl. 10:31

Félagsmálaráðuneyti gerði athugasemd við kosningu í bæjarstjórn Voga

Félagsmálaráðuneytið setti ofaní við forseta bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga vegna kjörs tveggja fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga var boðuð til aukafundar vegna þessa og kosið var að nýju. Minnihlutinn hafði kært niðurstöðu fyrstu kosningarinnar til ráðuneytisins.

Á aukafundinum samþykkti bæjarstjórn að fulltrúar Sveitarfélagsins Voga á XX. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verði Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri og Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi. Varamaður Róberts verður Birgir Örn Ólafsson, bæjarfulltrúi og varamaður Ingu Sigrúnar verður Sigurður Kristinsson, bæjarfulltrúi.  Samþykkt samhljóða.

Minnihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:
Á bæjarstjórnarfundi 27. júní þar sem kosið var um fulltrúa sveitarfélagsins á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var réttmætri tillögu minnihlutans um að fá annan fulltrúa á þingið, felld. Í framhaldi leitaði minnihlutinn til félagsmálaráðuneytisins til að fá úrskurð um lögmæti þessara valdníðslu meirihlutans.

Úrskurðurinn var birtur þann 13. september og var skýr og afdráttarlaus. Í úrskurði félagsmálaráðuneytisins stendur m.a.:
Með hliðsjón af þeirri skyldu og ábyrgð sem hvílir á forseta bæjarstjórnar skv. 22. gr. sveitarstjórnarlaga um að málsmeðferð á fundum sveitarstjórnar fari löglega fram, telur ráðuneytið að forseti bæjarstjórnar hafi ekki gætt þess nægilega við meðferð málsins á fundinum 27. júní 2006 að kosning færi fram í samræmi við 31. gr. samþykktar um stjórn og fundarköp sveitarfélagsins. Að mati ráðuneytisins bar forseta að beina meðferð málsins í þann löglega farveg að um það færi fram hlutfallskosning og í því sambandi kalla eftir lista minnihluta með nafni a.m.k. eins aðalmanns og annars til vara.

Með hliðsjón af framangreindu telur ráðuneytið að ekki verði hjá því komist að ógilda niðurstöðu atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Voga á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og beina því til bæjarstjórnar að endurupptaka málið hið fyrsta.

Meirihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:
Meirihlutinn vill taka það fram að minnihlutinn hafði aldrei beint samband við forseta eða bæjarstjóra til að ræða athugasemdir þeirra við afgreiðslu málsins, heldur fór erindið beint til ráðuneytisins og án þess að bæjarstjórn eða forseti fengi afrit af því. Um leið og forseta var málið ljóst, þ.e. þegar hann fékk bréf frá félagsmálaráðuneytinu í byrjun ágúst var haft samband við oddvita minnihluta. Þann 9.ágúst var boðin sátt í málinu sem fólst í því að taka það upp aftur. Þeirri sátt var hafnað og vildi minnihlutinn að ráðuneytið hlutaðist til um að málið yrði tekið upp aftur. Nú liggur niðurstaða ráðuneytisins fyrir, sem er sú sama og forseti bauð þann 9. ágúst, þ.e. endurupptaka málsins.

Minnihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:
Samkvæmt fundargerð þann 27. júní síðastliðinn er ljóst að minnihlutinn var ósáttur við afgreiðslu málsins og sættir voru ekki boðnar fyrr en meirihlutanum var ljóst að afgreiðslan var kærð til félagsmálaráðuneytisins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024