Félagastuðningur öflugt tæki
- eftir erfið útköll og verkefni lögreglu.
Félagastuðningur innan lögreglunnar hefur fest sig í sessi sem öflugt tæki og stuðningur við lögreglumenn eftir erfið útköll og verkefni sem þeir hafa tekist á við. Þetta kemur fram í ársskýrslu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Þá kemur fram að ekkert eitt tiltekið atvik sé skráð sérstaklega fyrir árið 2013 þar sem félagastuðningi var beitt. Þó hafi nokkrir stuðningsfulltrúar greint frá því að þeir hafi átt samtöl við lögreglumenn vegna atvika og líðanar almennt.